Hnjúkamói 14

Almennar upplýsingar

Við Hnjúkamóa 14 reisir Stofnhús glæsilegt fimm hæða fjölbýlishús með 22 vönduðum og vel skipulögðum íbúðum. Íbúðirnar eru 2ja til 4ja herbergja og stærðir þeirra eru frá 51 til 157 m2.

Allar íbúðir eru afhentar fullbúnar að innan með fallegum, sérsmíðuðum innréttingum frá Voké-III og vönduðum AEG heimilistækjum frá Rafha. Slitsterkt harðparket er á gólfum og ljósar, ítalskar flísar á baðherbergjum - allt frá Álfaborg.

  • Íbúðir á 1. hæð bjóða upp á sérreignarreit með timburpalli.
  • Íbúðir á 2.-4. hæð eru með stórum, skjólgóðum svölum með timburklæðningu.
  • Húsið stendur á rúmgóðri lóð með góðri aðkomu og bílastæði fyrir hverja íbúð. Möguleiki er á hleðslustöðvum fyrir rafbíla.
  • Allar íbúðir eru tilbúnar fyrir háhraða ljósleiðaratengingu frá Mílu.
  • Geymslur með öllum íbúðum.
Stofa

Hlutdeildarlán

Einfaldari leið í eigin íbúð

Hlutdeildarlán er frábær leið til að komast inn á fasteignamarkaðinn. Einungis þarf að eiga 5% eigið fé, en HMS (Húsnæðis- og mannvirkjastofnun) lánar allt að 25% af kaupverði, greiðslulaust. Kaupandi tekur síðan 70% húsnæðislán hjá banka eða lífeyrissjóði.

Allar íbúðir hjá Stofnhús, að undanskildum þakíbúðum, uppfylla skilyrði fyrir hlutdeildarláni. Einungis þarf að eiga frá 2,2 m.kr. til að eignast fasteign með hlutdeildarláni í Hnjúkamóa.

Nánari upplýsingar um hlutdeildarlán og skilyrði má finna á https://island.is/hlutdeildarlan

Hafið samband við fasteignasala og þeir fara nánar yfir fyrirkomulag hlutdeildarlána.

Hlutdeildarlán
 

Einstök staðsetning

Þorlákshöfn, Hamingjan er hér!

Það er margt spennandi að gerast í Þorlákshöfn um þessar mundir þar sem unnið er að fjölbreyttri uppbyggingu. Í þorlákshöfn blasa við einstök tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu. Bæði fyrir fjölskyldur, fyrirtæki, frumkvöðla og þá rótgrónu.

Þorlákshöfn býður upp á öflugt íþróttastarf, frábæra sundlaug og næga atvinnu. Stutt er í leik- og grunnskóla og í alla þjónustu í nágrenninu. Falleg náttúra er allt um kring með ýmiss konar útivistarmöguleika.

Góðar tengingar við önnur sveitafélög. Þorlákshöfn er sannkallaður framtíðarstaður.

Þakíbúðir

Aukin þægindi og útsýni

Glæsilegar þakíbúðir eru á 5. hæð með stórri þakverönd og fallegu útsýni. Íbúðirnar eru stórar með aukinni lofthæð, gólfsíðum gluggum og gólfhita. Hjónaherbergi eru rúmgóð með fatarými og aðgengi út á svalir með fallegu útsýni. Timburpallur er á þakverönd og þar eru tengingar fyrir heitan pott eða saunuklefa. Lokuð bílgeymsla á jarðhæð fylgir öllum þakíbúðum.

Þakíbúðirnar bjóða upp á aukinn sveigjanleika, meira rými og glæsilegt yfirbragð, fyrir þá sem vilja aðeins meira.


Íbúðir


Myndir


Sýningaríbúðir

Veldu íbúð

Sýningaríbúð 401


Tímalína

Undirbúningsvinna

Lokið

Október 2024

Framkvæmdir hefjast

Mars 2026

Sala íbúða hefst

Sumar 2026

Afhending

Opið hús

Hnjúkamóum 14, 815 Þorlákshöfn

Hafið samband við fasteignasala til að fá að skoða utan auglýstra tíma.

[object Object]

Heimir
Hallgrímsson

[object Object]

Andri Freyr
Halldórsson

[object Object]

Hrafnkell Pálmi
Pálmason

[object Object]

Einar Örn
Ágústsson

Hraunhamar fasteignasala
[object Object]

Hlynur
Halldórsson

Hraunhamar fasteignasala
[object Object]

Guðbjörg
Heimisdóttir

Fasteignasala Suðurlands